Sviss: Sakaður um að hafa valdið eignatjóni með jarðskjálfta
Yfirmaður jarðhitafyrirtækis hefur verið dreginn fyrir rétt í Sviss og sakaður um að hafa valdið eignaspjöllum með því að framkalla öflugan jarðskjálfta.
Fyrirtækið Markus Haering's hefur unnið með borgaryfirvöldum i Basel í Sviss að því verkefni að umbreyta jarðhita sem er djúpt í iðrum jarðar í raforku.
Verkefninu var slegið á frest árið 2006 þegar jarðborar sem notaðir voru við verkið komu af stað jarðskjálfta. Hér var um meira en smátitring að ræða því öflugustu skjálftarnir mældust 3,4 á Richter.
Engin tjón urðu á mönnum í skjálftavirkninni en tjón á eignum vegna hennar er metið á 9 milljónir dollara, rúman milljarð íslenskra króna.
Endanlega var hætt við verkefnið þegar opinber rannsókn leiddi í ljós að samskonar jarðskjálftar og þeir sem verkefnið olli myndu leiða til margra milljóna dollara skemmda á ári ef borunum yrði haldið áfram.