Hyggjast gera London að rafmagnsbílaborg Evrópu
borgarstjóri kynnir áætlun um uppsetningu á yfir 20 þúsund hleðslupóstum
Boris Johnson, borgarstjóri í London, tilkynnti í dag að Mitsubishi i-MiEV rafmagnsbíllinn hafi verið valinn sem leiðandi ökutæki í uppbyggingu umhverfisvænnar umferðarmenningar í borginni. Er þessi yfirlýsing gefin á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn.
Fylgir London þar í kjölfar yfirvalda í Kaupmannahöfn sem setja sér það markmið að borgin verði án kolefnaútblásturs ökutækja árið 2025. Þess má geta að Mitsubishi hyggst hefja prófanir á i-MiEV rafbílnum á Íslandi á næsta ári.
Borgarstjórinn í London sagði í ávarpi á fundi borgarstjóra á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn að gullöld hreinna og grænna rafbíla væri runnin upp. London yrði í forystu borga heimsins til að innleiða nauðsynlegt kerfi fyrir slíkt. Ætlunin væri að gera rafbíla aðgengilega fyrir daglega notkun borgarbúa. Þannig hygðist London leiða samstarf stærstu borga til að ná fram samlegðaráhrifum af innleiðingu rafbíla á heimsvísu.
Í tilkynningunni er sagt að gert sé ráð fyrir að á árinu 2015 yrði fjarlægð hvers einasta íbúa Lundúna frá hleðslustað fyrir rafbíla, aldrei meiri en ein míla. Sett verði upp þéttriðið net hleðslustöðva í borginni til að styðja við notkun mengunarlausra ökutækja.
Settar verða upp 22.500 hleðslupóstar nærri vinnustöðum í borginni. Þá verða 500 hleðslustöðvar á götum borgarinnar og 2.000 á opnum bílastæðum. Einnig er áætlað að setja upp hraðhleðslustöðvar á lykilstöðum við þjóðvegakerfið, m.a. á bensínstöðvum.