Bresk heimili verja 250 pundum árlega í umhverfisvænar vörur
Breskar fjölskyldur verja að meðaltali um 250 Sterlingspundum árlega í vörur sem teljast sérstaklega umhverfisvænar, til að mynda sparnaðarljósaperur svo dæmi sé tekið.
Þetta kemur fram í úttekt um umhverfisvænar neysluvenjur í breska blaðinu Telegraph en neysla á vörum sem eru sérstaklega umhverfisvænar hefur aukist um 5% á milli ára samkvæmt árlegri skýrslu The Co-operative Bank's. Samkvæmt skýrslunni velta umhverfisvænar neysluvörur um 6,4 milljörðum punda í ár.
Fram kemur í skýrslunni að alls staðar á landinu hafa útgjöld heimila til umhverfisvænna neysluvara aukist, þ.e. lítill munur er á þéttbýli og dreifbýli. Þá hafa útgjöld heimila til almenningssamgangna einnig aukist. Eini liðurinn sem ekki hefur aukið veltu á milli ára er frjálst framlag til kolefnisjöfnunar.
En þrátt fyrir þessa aukningu teljast útgjöld til sérstakra umhverfisvænna neysluvara innan við 1% af öllum útgjöldum breskra heimila.