Seltjarnarnes dregur úr prentkostnaði með umhverfisvænni lausn
Seltjarnarnesbær hefur gert samning til fjögurra ára við tækni- og rekstrarþjónustufyrirtækið Skyggni, dótturfélag Nýherja, um Rent a Prent prentþjónustu fyrir bæjarskrifstofu og grunnskóla bæjarfélagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skyggni en þar segir að markmið bæjarfélagsins með samningnum sé að stuðla að lækkun á prent- og ljósritunarkostnaði og rekstri á prentbúnaði, svo sem með aðgangsstýrðu prentkerfi. Þannig styðji samningurinn við vistvæna umhverfisstefnu bæjarfélagsins því lausnin dragi úr pappírsnotkun sem og akstri vegna viðhalds á búnaði.
Fjarvöktun verður á prentbúnaði bæjarfélagsins og því hægt að bregðast við um leið og bilun á sér stað; skipta um vélarhluta í prentbúnaði þegar eðlilegum notkunartíma þeirra fer að ljúka. Þá er tekið mið af notkun á pappír á hverjum stað og einungis fyllt á þegar þess er þörf.
Þá segir Skyggnir að lausnin auki jafnframt öryggi í meðferð gagna því með auðkenniskorti á prentverki er hægt að koma í veg fyrir að viðkvæmar upplýsingar liggi á glámbekk.
„Aðgangsstýring kemur einnig í veg fyrir sóun á pappír en almennt er talið að um 15% af útprentun fyrirtækja sé vannýtt,“ segir í tilkynningunni.
Magnús Böðvar Eyþórsson framkvæmdastjóri Sölu- og ráðgjafarsviðs Skyggnis segir í tilkynningunni að Rent a Prent feli í sér allt að því 25-30% lækkun á árlegum prentkostnaði fyrirtækja og stofnana.