Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hlutu umhverfisverðlaun Ferðamálastofu
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu voru afhent í 15. sinn í dag. Þau komu í hlut Íslenskra Fjallaleiðsögumanna fyrir markvissa umhverfisstefnu, með það að leiðarljósi að öll ferðamennska á vegum fyrirtækisins sé sjálfbær. Einnig fyrir áralanga baráttu fyrir verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða með hagsmuni næstu kynslóða í huga.
Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu en Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin.
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 af fjórum ungum fjallaleiðsögumönnum en hefur frá þeim tíma sameinast tveimur öðrum fyrirtækjum, Íslandsflökkurum og Icelandic Travel Market.
„Fyrirtækið hefur frá upphafi haft það að markmiði að auka fagmennsku og fræðslu í leiðsögn, fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, kynna þeim undraheima hálendis Íslands og íslenskrar náttúru og stuðla að góðri umgengni og verndun viðkvæmrar náttúru þannig að komandi kynslóðir megi njóta hennar á sama hátt og við,“ segir á vef Ferðamálastofu.
„Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum.“