100 ára viskí grafið upp á Suðurheimsskautinu
Áhugamenn um viskí bíða spenntir eftir því að fá að líta augum og hugsanlega dreypa á 100 ára gömlu skosku viskíi sem ráðgert er að grafa upp úr ís á Suðurheimsskautinu.
Landkönnuðurinn Ernest Shackleton skildi þessar dýru veigar eftir þegar hann sneri til baka úr misheppnuðum leiðangri á Suðurpólinn.
Viskíið, sem er frá McKinlay and Co, fannst fyrst fyrir þremur árum grafið við kofa á Cape Royds sem menn í leiðangri Shackletons notuðu á árunum 1907-1909. Tveir viskíkassar sáust en voru svo kyrfilega fastir í ísnum að ekki var viðlit að losa um þá.
Sérstakur sjóður á Nýja Sjálandi, sem hefur það hlutverk að varðveita sögulegar minjar á Suðuheimsskautinu, vinnur að því að endurgera kofann á Cape Royds og færa hann í sama horf og hann var í þegar menn Shackletons yfirgáfu hann. Sérstakir ísborar verða nú notaðir til að ná viskíkössunum upp. Kassarnir og flöskurnar fara til meðhöndlunar hjá forvörðum í Nýja Sjálandi áður en þeim verður endanlega komið fyrir í minjasafni í kofanum á Cape Royds. Viskíið sem hér um ræðir er ekki lengur í framleiðslu. Whyte & Mackay, brugghúsið sem nú á McKinlay and Co, hefur óskað eftir því að fá sýnishorn af viskíinu til nánari skoðunar.
Skip leiðangurs Shackletons yfirgaf Cape Royds í flýti í mars 1909 og skildu menn eftir talsvert af búnaði og vistum, þar á meðal viskíið. Allir leiðangursmenn komust lifandi til síns heima þrátt fyrir mikla erfiðleika. Shackleton á að hafa sagt við konu sína síðar: ,,Lifandi asni er betri en dautt ljón.“
Þess má svo geta að árið 1911 náði fyrsti maðurinn að komst alla leið á Suðurpólinn en það var Norðmaðurinn Roald Amundsen.
Heimild: Vefur BBC o.fl.