Djúpsjávarkrabbi sem étur tré
Nýleg uppgötvun vísindamanna leiðir í ljós að í sjávardjúpunum finnst krabbategund sem lifir á trjám og viðarleyfum sem falla á hafsbotninn, að því er fram kemur á vef BBC.
Í maga krabbans (Munidopsis andamanica) eru bakteríur sem framleiða ensím sem hjálpar krabbanum við að melta viðinn sem er tormeltur fyrir flest dýr. Þessi uppgötvun, sem skýrt er frá í tímaritinu Marine Biology, styður þá kenningu að trjáviður sem ratar á hafsbotninn er ekki bara rusl heldur afar mikilvægur hluti af vistkerfi botndýra og lífríki sjávar. Vísindamenn frá Belgíu og Frakklandi stóðu að þessum rannsóknum.
Vitað var fyrir að ýmsir ormar og smærri skeldýr lifðu á trjáviði en vísindamennirnir segja að fyrirfram hefðu þeir talið ólíklegt að botndýr á borð við krabba gætu haft lifibrauð sitt af fæðu frá fastalandinu. Nánari rannsóknir á munni og maga krabbans leiddu í ljós að fæði hans var eingöngu viður. Þessi staðreynd hrekur fyrri kenningar um að krabbar af þessari gerð væri aðallega rándýr sem legðust á önnur sjávardýr.