Olíuskip á siglingu undan Suðausturlandi með 106 þús. tonn af hráolíu
Olíuskipið URALS STAR er nú á siglingu undan Suðausturlandi með 106 þúsund tonn af hráolíu innanborðs. Skipið stefnir 12 mílur suður af Dyrhólaey en skipið er á leið frá Murmansk til austurstrandar Bandaríkjanna með olíu til hreinsunar.
Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar en skipið tilkynnti ekki siglingu sína innan hafsvæðisins eins og lög og reglur gera ráð fyrir og hafði því Landhelgisgæslan samband við skipið kl. 15:10 í gær. Var skipið þá um 22 sjómílur SA-af Hrollaugseyjum.
Olíuskipið URALS STAR er um 115.000 brúttótonn, 254 metrar að lengd og 44 metrar að breidd, með eins og fyrr segir 106.000 tonn af hráolíu innanborðs.
Var skipstjóri upplýstur um óskir Íslands um að öll skip á leið um lögsöguna upplýsi um ferðir sýnar, ekki síst skip af þessari stærð og með slíkan farm. Skipstjóra virtist ekki vera kunnugt um reglur þessar en vinnur nú í senda Landhelgisgæslunni nauðsynlegar upplýsingar.