Milljónatjón vegna minkadauða í Skagafirði
Mikið tjón hefur orðið í minkabúinu á Skörðugili í Skagafirði en þar hafa minkar sýkst af lungnabólgu undanfarið með þeim afleiðingum að fjöldi dýra hefur drepist.
Þetta kemur fram á vef Bændablaðsins en Einar Einarssonar, ráðunautur og bóndi á Skörðugili, segir að um bráðsmitandi pest sé að ræða sem orsakast af bakteríu sem algeng er í umhverfinu en verður hættuleg þegar vissar aðstæður skapist, svo sem mikill raki og stillt veður.
Á þriðja þúsund minkar af þeim fjórtán þúsund sem á búinu voru eru dauðir og veikin síst í rénum.
Einar segir í samtali við Bændablaðið að grunur hafi vaknað um að ekki væri allt með felldu á þriðjudag í síðustu viku. Á miðvikudag hafi hann svo verið orðin alveg viss um hvað væri á seyði og krufning dauðra dýra hafi staðfest það.
Þá segir Einar að fjárhaglegt tjón vegna veikinnar sé mikið.
„Ég gæti trúað að það væri alla vega tíu milljónir króna nú þegar, bæði vegna verðfalls skinna og vegna dauða ræktunardýra. Það er tjón sem ég sit uppi með því ég fæ þetta ekki bætt neins staðar frá,“ segir Einar í samtali við Bændablaðið.