Ný risakónguló fundin
Ný og sjaldgæf tegund af risakónguló fannst óvænt í Afríku og á Madagaskar, að því er fram kemur á vef BBC.
Þessi nýja tegund, sem hlotið hefur vísindanafnið Nephila komaci, er í flokki kóngulóa sem spinna stærstu vefi sem vitað er um. Að sögn vísindamanna getur Nephila komaci spunnið vef sem er einn metri í þvermál.
Það er aðeins kvenpeningurinn sem nær risastærð. Karlinn er örsmár í samanburði við kerlinguna. Bilið milli fóta á kvendýrinu nær allt að 12 sentímetrum. Bolurinn getur orðið allt að 4 sentímetrum að lengd. Kóngulóin kemst því rétt fyrir í lófa manns.
Nýju kóngulóna fann Slóveninn Matjaz Kuntner. Reyndar hafði hún borið fyrir augu manna í safni í Suður-Afríku árið 2000 en þá var talið að hún væri útdauð fyrir löngu. Sjö árum síðar fundu vísindamenn merki þess að hún væri sprelllifandi. Vísindamenn fagna þessari uppgötvun og telja að frekari rannsóknir á kóngulónni geti varpað ljósi á það hvers vegna kvendýr nær risastærð í samanburði við karlinn. Það sem skyggir á gleði þeirra er að kóngulóin finnst aðeins á takmörkuðu svæði og er talin vera í útrýmingarhættu.