Hnokki frá Dýrfinnustöðum
Nýr fulltrúi Steðjaættar
Hestar og hestamenn
26. júlí 2010 kl. 13:48
Hnokki frá Dýrfinnustöðum, knapi Metti Mannseth. Mynd: Henk Peterse
Hnokki frá Dýrfinnustöðum er nýr fulltrúi Steðjaættarinnar úr Flókadal. Hann hlaut fyrstu verðlaun á Vindheimamelum á dögunum, 7,94 fyrir sköpulag, 8,23 fyrir kosti og 8,12 í aðaleinkunn. Hann er jafngóður alhliðahestur með 8,5 fyrir tölt, skeið, vilja og fegurð. Hann er fæddur grár en var orðinn hreinhvítur tveggja vetra. Hann er undan Hágangi frá Narfastöðum og Játningu frá Steðja, sem var skyldleikaræktuð af Steðjaætt.