Arður kemur sterkur inn
Díva frá Álfhólum er sannkölluð díva
Hestar og hestamenn
26. júlí 2010 kl. 13:42
Díva frá Álfhólum, knapi Sara Ástþórsdóttir. Mynd/Jens Einarsson
Tveir bráðgóðir stóðhestar undan Arði frá Brautarholti komu fram á Vindheimmelum og fengu báðir góð fyrstu verðlaun. Fyrsta athyglisverða afkvæmi Arðs frá Brautarholti sem kom til dóms var hins vegar Díva frá Álfhólum. Sem er sannkölluð díva ef hægt er heimfæra það orð upp á tölthross. Hún er undan Dimmu frá Miðfelli í Hornafirði, sem er undan Hrafni frá Hrafnhólum og Brönu frá Miðfelli, Flosadóttur frá Brunnum. Díva var sýnd 5 vetra í 8,10 í aðaleinkunn, þar af 9,0 fyrir tölt, stökk, vilja og fegurð. Hún hefur oftar en einu sinni skorað hátt yfir sjö í töltkeppni og. Þá einnig fimm vetra. Ræktandi Dívu er Sara Ástþórsdóttir á Álfhólum, sem á hryssuna ásamt Róbert Veigari Ketel og Sigurði Tryggva Sigurðssyni.