Meginmál
TölublöðVenjuleg útgáfa

SpKef undir "sérstöku eftirliti" FME frá sumrinu 2009

18. ágúst 2011 kl. 09:22

Fjármálaeftirlitið

Ástandið á Suðurnesjum, Beina brautin og ólögmæti gjaldeyrislána hafði lækkandi áhrif á virði eigna sjóðsins.

Fjármálaeftirlitið (FME) setti sérfræðing inn í Sparisjóð Keflavíkur í júní 2009 til að hafa sérstakt eftirlit með sjóðnum. Sérfræðingurinn skilaði reglulegum skýrslum til FME um ástand sjóðsins. Þetta segir Gunnar Andersen, forstjóri FME.

Sparisjóðurinn í Keflavík óskaði eftir því að FME tæki sjóðinn yfir í apríl 2010. Nýr sjóður, SpKef, var búinn til og eignir, innstæður og 900 milljóna króna eiginfjárframlag íslenska ríkisins lagt inn í hann. Sá náði ekki að starfa í heilt ár áður en 58 milljarða innstæður, 18 milljarðar í öðrum skuldum og eignir voru færðar til Landsbankans. Landsbankinn vill meina að eignarsafn SpKef hafi verið stórlega ofmetið og að ríkið þurfi að leggja 38 milljarða króna með því. Viðræður standa nú yfir milli fjármálaráðuneytisins og Landsbankans um hversu mikið af skattfé þarf að fylgja með SpKef inn í Landsbankann. 

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag.



SJÁ EINNIG

Mál Gunnars enn hjá ríkissaksóknara

Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, segir markmiðið að ljúka málinu sem fyrst en ekki sé hægt að lofa neinu.


Allt
Innlent
Erlent