Meginmál
TölublöðVenjuleg útgáfa

Fjármálaráðherra hættir við víkkun kolefnisgjalds

28. nóvember 2011 kl. 14:40

Steingrímur J. Sigfússon

Ítrekar fyrri fyrirheit um að tryggja samkeppnisstöðu fyrirtækja hér á landi.

Fjármálaráðherra ætlar að leggja til hliðar áform um breikkun gjaldstofn kolefnisgjalds, sem gagnrýnd hefur verið harðlega af talsmönnum álframleiðslufyrirtækja og fleiri. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. SA og fulltrúar helstu fyrirtækja sem ætlað var að greiða kolefnisgjald af föstu kolefni áttu í dag fund með fjármálaráðherra og fulltrúum iðnaðarráðuneytisins og umhverfisráðuneytisins.

Fjármálaráðherra mun hafa lýst því yfir að hann myndi leggja til hliðar áform um breikkun stofns kolefnisgjalds sem finna má í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Hann mun einnig hafa ítrekað fyrirheit um að tryggja samkeppnisstöðu fyrirtækja sem reka starfsemi sína hér á landi gagnvart erlendum samkeppnisaðilum. Þá leggi stjórnvöld áherslu á að tryggja að forsendur þeirra fjárfestingaverkefna sem unnið hefur verið að raskist ekki.



SJÁ EINNIG

AGS vildi fá Steingrím til Grikklands í hálft ár

Steingrími J. Sigfússyni var boðið að taka við sem fjármálastjóri Grikklands í hálft ár, en hafnaði boðinu.


Allt
Innlent
Erlent