Fyrrverandi forstjóri Byrs inn til Íslandsbanka
Jón Finnbogason, fyrrverandi bankastjóri Byrs, verður aðstoðarbankastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.
Fólk
5. desember 2011 kl. 15:34
Jón Finnbogason
Jón Finnbogason, fyrrverandi forstjóri Byrs, hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka. Una Steinsdóttir er framkvæmdastjóri sviðsins.
Jón er lögmaður að mennt og hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1998. Síðustu þrjú ár hefur hann starfað hjá Byr sparisjóði og síðar Byr hf. Jón var áður sjóðsstjóri sérhæfðra skuldabréfasjóða á eignastýringasviði Kaupþings. Þá hefur hann verið formaður íþróttafélagsins Gerplu frá árinu 2006, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka sem hefur fengið græna ljósið til að kaupa Byr.
Jón er giftur Lindu Björk Logadóttur og eiga þau fimm börn.