Grjótharður Gróttumaður
Formaður slitastjórnar Kaupþings er fyrrverandi unglingalandsliðsmaður í handbolta og hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir HSÍ.
Seltirningurinn Davíð Benedikt Gíslason er formaður slitastjórnar Kaupþings og hefur hann setið í slitastjórninni frá árinu 2009. Nú nýlega tók hann við formennsku slitastjórnarinnar af öðrum Seltirningi, Ólafi Garðarssyni. Davíð er fyrrverandi handboltahetja og hefur einnig mikinn áhuga á stangveiði.
Handboltahetja
Davíð var í unglingalandsliðinu í handbolta og byrjaði að spila með meistaraflokki Gróttu aðeins 15 ára. Kunnugir segja Davíð vera mjög mikinn keppnismann og er eftirminnilegasta atvik hans úr handboltanum þegar hann reif sig úr upphitunargallanum og hljóp inn á völlinn í meistaraflokksleik. Það var aðeins eitt vandamál, hann hafði gleymt að fara í stuttbuxurnar.
Nánar í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð.