Þorvaldur E. Sigurðsson ráðinn til Orkuveitunnar
Þorvaldur E. Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Virkjana og sölu hjá Orkuveitunni.

Þorvaldur E. Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Virkjana og sölu hjá Orkuveitunni. Undir sviðið heyrir rekstur allra virkjana fyrirtækisins og raforkusala á samkeppnismarkaði.
Þorvaldur er 47 ára gamall rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands með víðtæka stjórnunarreynslu úr íslensku atvinnulífi. Hann var forstöðumaður kerfisverkfræði- og vélbúnaðarsviðs Kögunar í 10 ár. Þá var hann framkvæmdastjóri rekstrarlausna Skýrr og staðgengill forstjóra um níu ára skeið og stýrði þar hópi 60-100 starfsmanna.
Þorvaldur var framkvæmdastjóri Verne Holding ehf. 2008 og 2009 og hefur víðtæka þekkingu á gagnaverum af þeim vettvangi. Síðustu ár hefur Þorvaldur unnið að ráðgjöf hjá eigin fyrirtæki og fyrir gagnaflutningsfyrirtækið Emerald Networks.
Staða framkvæmdastjóra Virkjana og sölu var auglýst í október og rann umsóknarfrestur út 14. nóvember. Umsækjendur voru 38, þar af fimm konur.
Þorvaldur hefur störf hjá Orkuveitunni um áramótin.