Hóf stjórnmálaferilinn yfir kaffibolla í Garði
Stærðfræðikennarinn Oddný G. Harðardóttir er orðinn fjármálaráðherra. Hún hefur verið kennari nánast allan sinn starfsferil.
Oddný G. Harðardóttir hefur tekið við embætti fjármálaráðherra en hún er annar þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Oddný er fædd 9. april 1957, dóttir Harðar Sumarliðasonar járnsmiðs frá Meiðastöðum í Garði og Agnesar Ástu Guðmundsdóttur frá Garðhúsum í Garði.
Oddný er uppalin í Garðinum og hefur búið þar á æskuheimili sínu undanfarin 26 ár. Eiginmaður Oddnýjar er Eiríkur Hermannsson, fræðslustjóri Reykjanesbæjar, og eiga þau tvær uppkomnar dætur og eitt barnabarn.
Upphafið að stjórnmálaferli Oddnýjar voru umræður yfir kaffibolla meðal nokkurra kvenna og var upphaflega verið að hugsa um kvennaframboð í sveitarstjórnarkosningum í Garði. Nýr listi var stofnaður og var Oddný bæjarstjóraefni svokallaðs N-lista, lista nýrra tíma, og leiddi hann til sigurs en hann var þverpólitískt framboð með konum í meirihluta. Oddný var því bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs á árunum 2006 til 2009 eða þar til hún settist á Alþingi fyrir Samfylkinguna árið 2009.
Nánar er farið yfir ævi og störf Oddnýjar í umfjöllum um fólk í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf útgáfu undir liðnum tölublöð hér að ofan.