Sunnudagur, 19. maí 2013
 
TölublöðVenjuleg útgáfa

Já opnar ferðaþjónustuvef

10. janúar 2012 kl. 14:45

Aðilum í verslun og þjónustu sem eiga viðskipti við ferðamenn stendur til boða að skrá upplýsingar um sig endurgjaldslaust.

Fyrirtækið Já mun í dag opna nýjan vef sem ætlað er að veita erlendum ferðamönnum betra aðgengi að upplýsingum um Ísland og vörur og þjónustu sem þeim standa til boða hér á landi.

Vefurinn, sem verður á slóðinni www.iceland.ja.is, er samstarfsverkefni Já og aðila í íslenskri ferðaþjónustu, og verða íslensk fyrirtæki sýnilegri ferðamönnum bæði áður en þeir koma til landsins og á meðan á dvöl þeirra stendur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Já. Öll þau fyrirtæki sem þegar eru skráð hjá Já verða sjálfkrafa skráð á hinn nýja vef þeim að kostnaðarlausu. Hægt verður að sækja um sérstaka skráningu fyrir viðbótarupplýsingar og er vonast til þess að þeir fjölmörgu aðilar í verslun og þjónustu sem eiga viðskipti við ferðamenn, án þess að gera sérstaklega út á þá, nýti sér þessa leið.

Fram kemur að Já mun sjá um rekstur ítarlegs gagnagrunns yfir öll íslensk fyrirtæki og á nýja vefnum verður einnig hægt er að finna öll skráð fyrirtæki og þjónustuaðila á rafrænu landakorti og sjá hverjir þeirra eru innan seilingar hverju sinni.
 
„Í fyrra komu í kringum 600.000 ferðamenn til Íslands og sumir telja að þeim muni fjölga upp í milljón gesti innan nokkurra ára,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já, í tilkynningunni.

„Árlegur ferðamannafjöldi sem nemur tvöfaldri til þrefaldri íbúðatölu Íslands þarf vörur, þjónustu og ekki síst upplýsingar. Ferðamenn vilja með einföldum hætti að geta kynnt sér bæði verslanir og þjónustu á Íslandi. Þessi upplýsingaþörf á jafnt við um veitingastaði sem lýtalækna, hótel sem heilsulindir.“

Sigríður Margrét segir að Já búi yfir þeirri sérstöðu að uppfæra daglega gagnagrunni yfir öll fyrirtæki og þjónustuaðila á Íslandi og að fyrirtækið líti á fjölgun ferðamanna sem samstarfsverkefni þjóðarinnar.“

„Við erum með þessum nýja vef að leggja dýrmætt verkfæri í hendur bæði ferðaþjónustunnar og verslunarinnar. Ég tel að þjónustu- og verslunariðnaður á Íslandi geti rennt styrkari stoðum undir reksturinn með því að höfða betur til erlendra ferðamanna,“ segir Sigríður Margrét.

Sigríður Margrét Oddsdóttir
Sigríður Margrét Oddsdóttir



Allt
Innlent
Erlent
Fólk