CCP ræður erlendan reynslubolta í markaðsmálin á Dust
David Reid hefur margra ára reynslu af markaðssetningu á tölvuleikjum og leikjatölvum.

Tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur ráðið nýjan markaðsstjóra, David Reid, sem hefur margra ára reynslu úr leikjageiranum erlendis. Nú þegar styttist í að næsti leikur CCP, Dust 514, líti dagsins ljós er Reid ætlað að auka slagkraftinn í markaðssetningunni. Reid var áður markaðsstjóri hjá Trion Worlds, sem gaf út fjölspilaratölvuleikinn Rift, og hjá GameTap leikjaveitunni. Þá var hann yfirmaður alþjóðlegrar markaðssetningar fyrir Xbox 360 leikjatölvu Microsoft.
Í viðtali við Venturebeat segir Reid að hann honum þyki tilraun CCP til að tengja saman tvo ólíka leiki, Dust og Eve Online, mjög spennandi. Spilarar í öðrum leiknum geta haft áhrif á það sem gerist í hinum og þegar fram líða stundir á að tengja saman hagkerfi leikjanna tveggja. Hefur það aldrei verið reynt áður.
Reid var yfir 50 manna markaðssetningarteymi hjá Trion þegar þeim tókst að selja yfir eina milljón eintaka af Rift leiknum á örfáum mánuðum undir slagorðinu: „Við erum ekki lengur í Azeroth“, en það var vísun í risaleikinn World of Warcraft, sem gnæfir yfir aðra sambærilega leiki í dag.