Uppsagnir á næsta leiti
Á næstu dögum og vikum er von á fréttum um miklar uppsagnir starfsmanna hjá þekktum fyrirtækjum hér á landi.
Í síðustu viku birtu Samtök atvinnulífsins könnun þar sem stjórnendur 400 stærstu fyrirtækjanna í landinu sátu fyrir svörum.
Samkvæmt niðurstöðu hennar telja 67% stjórnenda aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar og hefur þeim fækkað örlítið frá fyrri könnun. Aðeins 4% stjórnenda telja aðstæður vera góðar.
* * *
Týr fylgist vel með bæði atvinnumálum og eins stjórnmálum – sem því miður eiga það til að tvinnast alltof oft saman. Týr rýndi því vel í fyrrnefnda könnun. Annað sem vakti athygli hans er að fjórðungur stjórnenda býst við því að þurfa að fækka starfsfólki á næstu sex mánuðum, þó stærstur hluti þátttakenda búist við óbreyttum starfsmannafjölda.
* * *
Þó Týr sé nálægt því að vera alvitur og bjartsýnn veit hann ekki hverjir mynda þennan 4% hóp sem telja aðstæður í atvinnulífinu vera góðar. Hugsanlega er það hlutfall ríkisfyrirtækja í könnuninni.
* * *
Eitt veit Týr þó, að á næstu dögum og vikum er von á fréttum um miklar uppsagnir starfsmanna hjá þekktum fyrirtækjum hér á landi. Um er að ræða fyrirtæki sem ekki sjá fram á neinn efnahagsbata á næstunni, enda ekki nema von miðað við núverandi stjórnarfar.
* * *
Týr hefur fylgst með og hlustað á umkvartanir atvinnurekenda vegna þess stjórnarfars sem nú ríkir. Týr metur það sem svo að Jóhanna Sigurðardóttir hafi gefið eftir atvinnustefnu Vinstri grænna – ef atvinnustefnu skyldi kalla. Hún felst fyrst og fremst í því að stöðva alla atvinnuuppbyggingu í landinu sem ekki er þóknanleg litlum hópum innan Vinstri grænna og rífa niður þá atvinnugeira sem vel ganga með aukinni skattheimtu og regluverki. Sárast þykir Tý þó að skattastefnan miði fyrst og fremst að hugmyndafræði úr gömlum vinstri kreddum.
* * *
Týr las að sjálfsögðu ítarlegt viðtal við Össur Skarphéðinsson í áramótatímariti Viðskiptablaðsins. Þar kallaði Össur eftir því að hinir svokölluðu hægri kratar fái að blómstra, m.a. í þágu atvinnulífsins. Týr þykist nú vita að hægri kratarnir, sem bældir hafa verið niður í Samfylkingunni undanfarið og eru flestir hættir afskiptum af pólitík, eru ósáttir við aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum.
Týr veltir því fyrir sér hvort komandi hópuppsagnir verði ekki til þess að þeir fari að láta til sín taka innan Samfylkingarinnar.