Farinn frá Íslandsbanka til Straums
Leó Hauksson hefur verið ráðinn í fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingarbanka.
Fólk
21. janúar 2012 kl. 15:45

Leó Hauksson hefur verið ráðinn í fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingarbanka hf. Leó hefur starfað á fjármálamarkaðnum síðastliðin 12 ár, hjá Kaupþingi banka (síðar Arion banka) á árunum 1999–2011 og hjá íslandsbanka á síðastliðnu ári.
Leó er með BS-gráðu frá Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og með próf í verðbréfamiðlun.