Tinna til Íslandsbanka
Tinna Molphy hefur verið ráðin til að sjá um fjárfestatengsl hjá Íslandsbanka.
Fólk
22. janúar 2012 kl. 10:31
Tinna Molphy (í miðju) var áður hjá Landsbanka Íslands og Icelandic Group.
Tinna Molphy hefur verið ráðin til að sjá um fjárfestatengsl hjá Íslandsbanka. Hefur bankinn náð sér þar í reyndan starfsmann því Tinna gegndi svipaðri stöðu hjá Landsbanka Íslands fyrir hrun.
Hafði hún í millitíðinni stutta viðkomu hjá Icelandic Group eftir að Framtakssjóður Íslands festi kaup á félaginu í gegnum Vestia.