Grikkir nálægt samningi
Vonast er til að samningar geti mögulega tekist um eða rétt eftir helgi.
Erlent
27. janúar 2012 kl. 18:35
Olli Rehn.
Grikkir gætu mögulega náð samningum við lánardrottna sína nú helgina. “Við erum mjög nálægt því,” sagði Olli Rehn, framkvæmdastjóri fjármála hjá ESB á fundi í Davos að því er kemur fram í frétt á vef BBC. Hann sagðist vonast að til að samningar væru í höfn fyrir fund ráðamanna Evrópusambandsins á Möltu á mánudaginn.
Lítiið hefur gengið eða rekið í samningaviðræðum grískra stjórnvalda við lánardrottna um niðurfellingu hluta af skuldum Grikkja sem er forsenda þess að hægt verði að forða landinu frá gjaldþroti. “Menn eru um það bil að ná samningum, ef ekki í dag þá vonandi um helgina,” sagði Rehn.