Stríð á milli Íslandsbanka og Straums
Nokkrir starfsmenn fylgdu Höllu Sigrúnu Hjartardóttur frá Íslandsbanka til Straums á dögunum. Íslandsbanki gat fyllt upp í skarðið.
Huginn & Muninn
28. janúar 2012 kl. 07:30
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka
Það brast á svolítið tilkynningastríð milli Íslandsbanka og Straums í síðustu viku. Halla Sigrún Hjartardóttir sagði upp hjá Íslandsbanka, þar sem hún var forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar, og réð sig síðar hjá Straumi fjárfestingarbanka.
Fleiri fylgdu Höllu yfir til Straums, meðal annars Leó Hauksson sem hafði starfað í Íslandsbanka skamma hríð. Svo þegar þetta var tilkynnt vildi svo „heppilega“ til að Íslandsbanki hafði svar við þessum liðsstyrk Straums. Var þaðan send tilkynning um að Ásmundur Tryggvason hefði verið ráðinn í starfið sem Halla gegndi áður.