Nýr framkvæmdastjóri hjá Valitor
Ástvaldur Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Alþjóðalausna hjá Valitor.
Fólk
28. janúar 2012 kl. 08:59
Ástvaldur Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Alþjóðalausna hjá Valitor.

Ástvaldur hefur víðtæka alþjóðlega stjórnunarreynslu eftir störf sín erlendis og á aðalskrifstofu Össurar hf. undanfarinn áratug. Þar áður átti hann sæti í framkvæmdastjórn Nýherja hf. og Pennans ehf.
Ástvaldur er með framhaldsmenntun frá Heriot-Watt University í Edinborg í Skotlandi og meistaragráðu í rekstrarhagfræði frá HÍ.