Meginmál
TölublöðVenjuleg útgáfa

Guðrún Erla og Kristján ný í stjórn Samorku

17. febrúar 2012 kl. 12:36

Guðrún Erla Jónsdóttir

Nýir fulltrúar kjörnir í stjórn að aðalfundi Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi.

Guðrún Erla Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur, og Kristján Haraldsson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða voru kjörnir nýir fulltrúar í stjórn Samorku á aðalfundi samtakanna.

Þá var Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, endurkjörinn. Guðrún Erla og Kristján taka sæti Franz Árnasonar, fyrrverandi forstjóra Norðurorku og Páls Pálssonar, veitustjóra Skagafjarðarveitna. Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Norðurorku, var kjörinn varamaður í stað Kristjáns Haraldssonar.

Guðrún Erla Jónsdóttir 

Kristján Haraldsson

Þórður Guðmundsson



SJÁ EINNIG

Kaupendur orku greiða nýtt eftirlitsgjald

Nýtt frumvarp tvöfaldar eftirlitsgjald með fluttningsfyrirtækjum og dreifiveitum raforku.


Allt
Innlent
Erlent