Aflaverðmæti eykst um þriðjung
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 57 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2010 samanborið við 43 milljarð á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 14 milljarða eða rúmlega 32% á milli ára, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok maí orðið 44 milljarðar og jókst um 30% á sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 34 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 22 milljarðar og jókst um 3% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum og jókst um 12% en verðmæti karfaaflans nam um 5,8 milljörðum, sem er 24% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 31% milli ára og nam rúmum 2,7 milljarði fyrstu fimm mánuði ársins.
Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 4,1 milljarði króna í janúar til maí 2010, sem er tæplega 10% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 68% milli ára og nam rúmum 8,5 milljörðum.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 25 milljörðum króna og jókst um 40% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar var tæpir 18 milljarðar, sem er 47% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 48% milli ára og var um 9,5 milljarðar.
Nánar á vef Hagstofunnar, HÉR