Verslunarkeðjan 10-11 hefur samið við Öryggismiðstöðina um heildarþjónustu á sviði öryggismála.  Öll öryggiskerfi 10-11 verða beintengd stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar sem vaktar kerfin og sinnir útkallsþjónustu allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Þá sinnir 115 Security, sem er dótturfyrirtæki Öryggismiðstöðvarinnar, umfangsmikilli verslunarþjónustu fyrir 10-11 á kvöldin, næturnar og um helgar.  Auk þess munu fyrirtækin vinna náið saman á fjölmörgum sviðum öryggismála m.a. forvörnum gegn rýrnun og þjálfun starfsmanna í að bregðast við ógnandi hegðun.

10-11 var áður með samning um sambærilega þjónustu við Securitas.