Samtök iðnaðarins harma að í nýju fjárlagafrumvarpi sjáist þess ekki merki að mikilvæg uppbygging á innviðum geti hafist og segja þeir í fréttatilkynningu því ljóst að ekki verði hægt að fara af stað í fjölmörg brýn verkefni sem hafa setið á hakanum.

„Fjárfestingar í vegakerfinu hafa að jafnaði numið 1,5-2% af landsframleiðslu en frá árinu 2009 hefur hlutfallið verið undir 1%,“ segir í tilkynningunni.

„Að mati Samtaka iðnaðarins vantar um 10 milljarða króna árlega og uppsöfnuð þörf í fjárfestingum í vegakerfinu er orðin að minnsta kosti 60 milljarðar króna.

Á sama tíma og engin aukning er í vegafjárfestingum hefur umferð aukist um 9%. Lítið viðhald hefur verið á vegum undanfarin ár og hætta er á að stórir hlutar í vegakerfinu eyðileggist.“

Of lágar fjárfestingar síðustu ár

Árni Jóhannsson, forstöðumaður bygginga- og mannvirkjasviðs SI, segir að fjárfestingar í innviðum og samgöngumannvirkjum hafi verið of lágar síðustu ár, þrátt fyrir góðan gang í efnahagslífinu.

„Við leggjum áherslu á að innviðafjárfestingar verði settar í forgang svo hægt verði að hefja framkvæmdir áður en skaðinn verður meiri en orðið er. Samgönguinnviðir eru lífæð samfélagsins og álag á það kerfi vex stöðugt,“ segir Árni.

„Það er nauðsynlegt að sýna ráðdeild í ríkisfjármálum en þarna er um brýnt hagsmunamál allra landsmanna að ræða sem ekki er hægt að fresta mikið lengur að ráðast í enda fjölmörg verkefni sem bíða.

Í aðdraganda nýafstaðinna Alþingiskosninga var ekki annað að sjá en að samstaða væri um átak í innviðauppbyggingu og eru það því mikil vonbrigði að þess skuli ekki sjást merki í fjárlagafrumvarpinu.“

Segja skort valda alvarlegum langtímaskaða

Samtök iðnaðarins meta það svo að innviðir séu ein af undirstöðum hagvaxtar og velferðar og veikir innviðir leiði til þjóðhagslegs taps.

„Fjárfestingar í arðbærum innviðum leiða til mun meiri ábata en kostnaðar við verkefnin. Innviðafjárfestingar geta þannig haft veruleg jákvæð áhrif á efnahagslífið en skortur á slíkum fjárfestingum getur að sama skapi valdið alvarlegum langtímaskaða.“