Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar nam 1,3 milljörðum króna árið 2018 en gert hafði verið ráð fyrir 798 milljónum í fjárhagsáætlun með viðauka. Skuldahlutfall bæjarins var 108% í árslok 2018 og lækkar úr 133% frá árslokum 2017. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Afkoma bæjarins er helmingi betri en við höfðum reiknað með sem sýnir enn og aftur hversu sterkur rekstur bæjarins er. Þessi niðurstaða er einkar ánægjuleg í ljósi þess að við lækkuðum fasteignaskatta- og gjöld á íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Við erum líka með útsvar undir lögbundnu hámarki og höfum ekki hækkað gjaldskrár í samræmi við kostnaðarhækkanir. Í Kópavogi hafa verið ýmis konar umsvifamiklar framkvæmdir en við höfum ekki tekið nein lán fyrir þeim framkvæmdum. Það eru hins vegar blikur á lofti og engin vafi á því að rekstur sveitarfélaga verður erfiðari í ár en í fyrra. Fall Wow Air og annar fyrirséður samdráttur í ferðaþjónustu hefur áhrif bæði á skatttekjur og velferðarútgjöld. Því er mikilvægt að sýna skynsemi og aðhald í rekstri," segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs í tilkynningunni.

Nýtt íþróttahús stærsta fjárfestingin

Fjárfest var fyrir 3,6 milljarða í eigum bæjarins. Stærsta einstaka framkvæmdin var bygging nýs íþróttahúss við Vatnsendaskóla sem nýtist skólanum og íþróttafélaginu Gerplu en 373 milljónir fóru í húsið 2018 sem kostaði um 1,1 milljarð í heildina.

Vaxtaberandi skuldir í ársreikningi 2018 voru 30,8 milljarðar.

Skuldahlutfall samstæðu er sem fyrr segir 108% en var 133% í árslok 2017 Það var hæst 242% árið 2010. Ekki voru tekin ný lán á árinu 2018 fyrir framkvæmdum og alls greiddir 3,2 milljarðar í afborganir lána.

27,3 milljarða króna eigið fé

Tekjur sveitarfélagsins námu rúmlega 32,1 milljörðum en gert hafði veið ráð fyrir 30,8 milljörðum í tekjum fyrir A- og B-hluta. Eigið fé samstæðunnar nam í árslok 27,3 milljörðum en eigið fé A-hluta nam tæplega 18.5 milljörðum.

Veltufé frá rekstri var 3,5 milljarðar króna en áætlanir höfðu gert ráð fyrir 4 milljörðum. Veltufé frá rekstri sýnir hvað rekstur gefur af sér til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána.

Rekstrarniðurstaða A-hlutans var jákvæð um 1,2 milljarða króna en gert hafði verið ráð fyrir 459 milljóna afgangi í viðaukaáætlun.

Laun og launatengd gjöld voru alls 16,4 milljarðar króna sem eru um 100 milljónum yfir því sem áætlað var. Heildarfjöldi starfsmanna hjá sveitarfélaginu í árslok 2017 voru 2.515 en meðalfjöldi stöðugilda 1.944.