Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 15,1 milljarði í mars og dróst saman um 21% samanborið við mars 2015 þegar aflaverðmætið nam 19,2 milljörðum. Minna aflaverðmæti skýrist af minni botnfisk- og uppsjávarafla. Verðmæti botnfiskafla nam 10,4 milljörðum í mars sem er 2,8 milljörðum minna en í mars 2015. Verðmæti uppsjávarafla dróst saman um rúm 25%, nam 3,8 milljörðum samanborið við 5,1 milljarð í mars 2015.

Aflaverðmæti á 12 mánaða tímabili frá apríl 2015 til mars 2016 nam tæpum 143 milljörðum króna sem er 4,5% samdráttur miðað sama tímabil ári fyrr. Á þessu tímabili hefur verðmæti botnfiskafla aukist um 4,8%, flatfiskafla um 43,5% en á móti hefur verðmæti uppsjávarafla dregist saman um tæp 35%.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.