Fleiri en 15 þúsund umsækjendur hafa sent inn umsóknir um 78 störf við að keyra nýjustu hraðlestir Bretlands, að því er Richard Branson eigandi Virgin Trains sem rekur lestirnar segir.

Hver af stöðunum 78 sem auglýstar voru fengu 200 umsóknir en þær eru staðsettar í London og Edinburgh. Í starfinu fellst að keyra 65 háhraða Hitachi lestir sem hefja eiga farþegaflutninga á austurströnd landsins frá árinu 2018.

Þjálfun þeirra sem fá stöðuna hefst í janúar, en lestirnar munu keyra á 200 kílómetra hraða á klukkustund til að byrja með en búist er við að þær muni síðar fara í 225 kílómetra hraða á klukkustund.