Fyrir hverja skattalækkun hafa skattar verið hækkaðir þrisvar sinnum. Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptaráðs Íslands á þeim skattkerfisbreytingum sem gerðar hafa verið frá árinu 2007.

Frá árinu 2007 hafa verið gerðar 211 breytingar á skattkerfinu. Breytingarnar skiptast í 51 skattalækkun og 160 skattahækkanir.

Í frétt á vefsíðu sinni hvetur Viðskiptaráð stjórnvöld til að halda áfram á braut frekari skattalækkana. Þónokkrar skattalækkanir komu til framkvæmda um síðustu áramót. Þá var tekjuskattur lækkaður, tollar á fatnað og skó afnumdir, orkuskattur á rafmagn afnuminn og tryggingagjald og útvarpsgjald lækkuð. Áætlað umfang þessara lækkana nemur um 11 milljörðum króna á ári.

„Með því að lækka fleiri skatta á komandi árum er þannig hægt að vinda ofan af óhagfelldri þróun skattkerfisins á fyrstu árum efnahagslægðarinnar. Þannig má styrkja forsendur aukinnar verðmætasköpunar og bættra lífskjara á komandi árum,“ segir í frétt Viðskiptaráðs.

Veigamestu breytingarnar frá árinu 2007 samkvæmt úttekt Viðskiptaráðs eru eftirfarandi:

  • Tekjuskattur einstaklinga (efsta þrep) hefur hækkað um 34%
  • Meðalútsvar hefur hækkað um 11%
  • Fjármagnstekjuskattur hefur hækkað um 100%
  • Erfðafjárskattur hefur hækkað um 100%
  • Skattur á neftóbak hefur hækkað um 459%
  • Kolefnisgjöld á bensín og díselolíu hafa hækkað um 107%
  • Almennt gjald af eldsneyti hefur hækkað um 176%
  • Tryggingagjald hefur hækkað um 38%