Vegna húsnæðisskorts hafa gámaskrifstofur verið innréttaðar bæði við Landspítalann á Hringbraut og í Fossvogi.

Gámaskrifstofurnar við Hringbraut risu árið 2014 en í fyrra var 27 gámum staflað við spítalann í Fossvogi. Í ársreikningi spítalans kemur fram að kostnaður við gámaskrifstofurnar í fyrra hafni numið 208 milljónum króna.

„Þessar bráðabirgðalausnir hafa minnt rækilega á við hvað er búið í húsnæðismálum Landspítala og að raunverulegar úrbætur þoli illa eða ekki bið," segir í ársskýrslu spítalans.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .