219 milljóna króna tap var af rekstri RÚV ohf á reikningstímabilinu 1. september 2013 til 28. febrúar 2014 eftir skatta.

Tap fyrir tekjuskatt var 274 milljónir króna og segir í tilkynningu frá stjórn RÚV að það sé heldur betri niðurstaða en gert hafi verið ráð fyrir í afkomuviðvörun 17. mars síðastliðinn. Þá var áætlað að tap fyrir tekjuskatt yrði 305 milljónir króna.

Samkvæmt efnahagsreikningi nema eignir félagsins 6.799 milljónja króna bókfært eigið fé í lok reikningstímabilsins 434 milljónir króna og eiginfjárhlutfall félagsins er 6,4%.