Eftir viðskipti Helgafells ehf. í dag með rúmlega 9,8 milljón hluti í TM sem nema 2,39% af hlutafé fyrirtækisins eiga Helgafell og F eignarhaldsfélag 28 milljón hluti sem nema 3,94% af útgefnu hlutafé. Ef miðað er við gengi TM þegar þetta er skrifað þá nema viðskiptum 233 milljónum króna.

Helgafell ehf. og F eignarhaldsfélag eru í eigu sömu aðila, þeirra Ara Fenger, Kristínar Fenger Vermundsdóttur og Bjargar Fenger. Þau eiga 1/3 útgefinna hluta. Því er send sameiginleg flöggunartilkynning félaganna sameiginleg flöggunartilkynning félaganna.