30% aukning var í bílasölu í ágúst síðastliðinn samanborið við sama mánuði árið 2016. Sala á nýjum bílum frá upphafi þessa árs til lok síðasta mánaðar jókst um 13,7%. Nýskráðir fólksbílar eru 17.095 stykki það sem af er þessu ári samanborið við 15.034 stykki á árinu 2016 eða aukning um 2.061 bíl.

Hlutfall bílaleigubíla í nýskráningum fólksbíla á árinu er 44,7% af heildinni á þessum fyrstu sjö mánuðum ársins. Það sem af er ári er búið að nýskrá 1.052 hreina rafmagnsbíla og 710 tvinnbíla sem setur Ísland í annað sæti á eftir Noregi varðandi hlutfall rafmagnsbíla af heildarskráningu af Evrópulöndum segir í frétt frá Bílgreinasambandinu.