Á aðfangadag er von á því að 40 flugvélar lendi á Keflavíkurflugvelli sem er aukning um 60% frá því í fyrra. Þá lentu 25 flugvélar á vellinum, en aukningin er ríflega þreföld frá árinu 2014.

Þá lentu 13 vélar á flugvellinum á aðfangadag að því er Morgunblaðið hefur tekið saman.

Bjartsýnustu spár gera ráð fyrir 40% aukningu á komu erlendra ferðamanna hingað til lands í desembermánuði þessa árs frá fyrra ári, að sögn Skapta Arnar Ólafssonar, upplýsingafulltrúa Samtaka ferðaþjónustunnar.

„Áramótin hafa verið mjög vinsæl meðal erlendra ferðamanna undanfarin ár en jólin eru alltaf að verða eftirsóknarverðari og sjáum við fram á töluverða aukningu í ár,“ segir Skapti við Morgunblaðið.

Í desember í fyrra komu 71 þúsund ferðamenn til landsins, en árið þar á undan voru þeir 54 þúsund. Talan í ár gæti numið í kringum 100 þúsund manns.