Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 25. desember til og með 31. desember 2015 var 122. Þar af voru 93 samningar um eignir í fjölbýli, 19 samningar um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.564 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,4 milljónir króna.

Þetta kemur fram í frétt Þjóðskrár um málið.

Á sama tíma var 23 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 10 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 733 milljónir króna og meðalupphæð á samning 31,9 milljónir króna.

Þá var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 290 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29 milljónir króna.