Ríflega helmingur Íslendinga, eða 59%, hefur áskrift af Netflix á heimili sínu. Þetta kemur fram í nýlegri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11. til 16. maí 2017. Þetta er aukning um 25,6 prósentustig frá því að könnun var framkvæmd í janúar 2016.

Aðeins hærra hlutfall kvenna en karla sögðu að einhver á heimilinu væri með áskrift að Netflix. Með auknum aldri lækkaði hlutfall þeirra sem voru með áskrift að Netflix. Af þátttakendum 68 ára og eldri sögðu 26% að áskrift af Netflix væri á heimilinu samanborið við 77% þátttakenda á aldrinum 18-29 ára. Af þeim í elsta aldurshópnum sögðu 5% að áskrift að Netflix yrði keypt á næstu 6 mánuðum.Af námsmönnum kváðu 80% að áskrift af Netflix væri á heimilinu, 68% stjórnenda og æðstu embættismanna og 66% sérfræðinga.