Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um úthlutun úr sjóðnum. Alls eru veittir styrkir til 58 verkefna hringinn í kringum landið og nemur heildarfjárhæð styrkja 610 milljónum króna. Þetta kemur fram í frétt atvinnuvegaráðuneytisins .

Einnig hefur ráðherra ferðamála falið Ferðamálastofu að ganga til samninga við Vegagerðina um þróun á ölduspákerfi vegna Reynisfjöru og Kirkjufjöru. „Tilgangurinn er að hægt verði að spá fyrir um hættulegar aðstæður, vara við þeim með sýnilegum hætti og mögulega grípa til aukinnar gæslu. Til þess að þetta sé mögulegt þarf að þróa spákerfi, framkvæma dýptarmælingar og setja upp ýmiss konar búnað. Þess er vænst að hægt verði að taka kerfið í notkun síðar á þessu ári,“ segir í tilkynningunni.

Fjármögnun verkefnisins er af fé sem sett var til hliðar af fjárveitingum Framkvæmdasjóðsins í þágu öryggismála og er gert ráð fyrir að kostnaðurinn verði um það bil 20 milljónir króna.

Hæsti styrkurinn til Landmannalauga

Hæsti styrkurinn í úthlutuninni í þessari úthlutun er að upphæð 60 milljónir króna til verkefna í Landmannalaugum. Næst hæsti styrkurinn nemur 31,2 milljónum króna .

„Þetta er sjötta árið sem Framkvæmdasjóður ferðamannastaða úthlutar styrkjum. Hlutverk sjóðsins er samkvæmt lögum að 1) stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt, 2) leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins, og 3) fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði ,“ er tekið fram í tilkynningunni.

Endurskoðun á hlutverki sjóðsins

Heildarupphæð styrkveitinga úr sjóðnum í ár nema 3,56 milljörðum króna. „Fyrir dyrum er endurskoðun á hlutverki sjóðsins sem tekur mið af því að komin er til sögunnar Landsáætlun á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um uppbyggingu innviða vegna álags af völdum ferðamennsku og útivistar,“ segir enn fremur.