Ný 620 íbúða byggð mun rísa í Smáranum, sunnan Smáralindar í Kópavogi. Byggðin hefur fengið nafnið 201 Smári. Hugmyndafræðin að baki 201 Smára byggir á nútímalegri nálgun skipulags, uppbyggingar og hönnunar sem ekki hefur verið boðið upp á áður hér á landi. Almenningi gefst tækifæri á að hafa áhrif á hönnun og útfærslu hverfisins og íbúðanna með beinum hætti m.a. með aðstoð gagnvirks vefsvæðis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Hugmyndin með 201 Smára er að skapa nútímaborgarhverfi með snjöllum lausnum í hjarta höfuðborgarsvæðisins. Við viljum fá fólk til að móta verkefnið með okkur og segja hvað því finnst skipta mestu máli við útfærslu á nútímaíbúðum og hverfi sem býður upp á nánast alla þjónustu sem völ er á.  Á viðbótarfermetrinn að vera í stofunni eða svefnherberginu, á eldhúsið að vera opið eða á að vera til sameiginlegt rými til afnota fyrir íbúa?  Með þessari nálgun mun almenningur geta haft bein áhrif á það hvernig hverfið, húsin og íbúðirnar mótast. Upplýsingar sem fást verða notaðar við hönnun og nánari útfærslu verkefnisins.” segir Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, sem sér um framkvæmd verkefnisins ásamt Reginn fasteignafélagi og Smárabyggð ehf.

Um er að ræða uppbyggingu í grónu hverfi þar sem hægt er að sækja nánast alla þjónustu í næsta nágrenni ásamt því að stutt er í Smáraskóla og íþróttasvæði Breiðabliks.  Ný borgarlína mun síðan styðja enn frekar við staðsetninguna til framtíðar. Áhersla verður á fjölbreytileika í stærðum íbúða og áhersla er á að skapa góðar aðstæður fyrir fjölskyldufólk.  Íbúðirnar verða frá um 50 fermetrum að stærð, og áhersla á vel skipulagðar tveggja til fjögurra herbergja íbúðir.

Nafnaleikur í samstarfi við Kópavog

Efnt verður til nafnaleiks í samstarfi við Kópavogsbæ um götunöfn og nafn á aðaltorgið í 201 Smára. Kynning á uppbyggingu hverfisins verður haldin í Smáralind og hefst í dag. Á sama tíma verður tekin í notkun gagnvirk síða þar sem fólki gefst kostur á að svara könnun sem hugmyndin er að nýta fyrir hönnun og uppbyggingu á byggingareitnum 201 Smári.

Halldór Eyjólfsson, þróunarstjóri Klasa segir verkefnið spennandi og mjög áhugavert að fá fram áherslur íbúa.  „Á skömmum tíma hafa orðið mjög miklar breytingar á því hvernig við lifum og húsnæðisþarfir fólks eru ekki þær sömu og þær voru fyrir nokkrum áratugum. Okkar daglega líf hefur breyst en íbúðirnar hafa ekki fylgt þróuninni nema að litlu leyti miðað við hinar hröðu tæknibreytingar og lausnir sem hafa orðið til. Nútímaheimilið er svo miklu meira en bara þak yfir höfuðið. Það þarf að uppfylla kröfur um öryggi og tæknilausnir. Mikil áhersla verður lögð á að nýta hvern fermetra til hins ýtrasta og með ýmsum snjöllum tæknilausnum má hámarka þá nýtinguna en um leið tryggja að öll nútímaþægindi séu til staðar,” segir Halldór.

Smári gata
Smári gata
© Aðsend mynd (AÐSEND)