Um 23% Íslendinga eru ánægð með fjölmiðla á Íslandi en um fimmtungur er óánægður. Konur eru ánægðari með fjölmiðla á Íslandi en karlar og Austfirðingar eru ánægðari en aðrir Íslendingar. Kjósendur Pirata eru óánægðastir með fjölmiðla á Íslandi en kjósendur Bjartrar framtíðar, Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs eru ánægðastir. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem að Maskína gerði á viðhorfi Íslendinga til einkavæðingar Ríkisútvarpsins.

Tveir af hverjum þremur svarendum eru andvígir því að einkavæða Ríkisútvarpið, en um 16% eru því hlynnt samkvæmt niðurstöðum Maskínu. Hærra hlutfall þeirra sem eru yngri en 25 ára er hlynnt því að einkavæða Ríkisútvarpið, eða meira en fimmtungur. Afstaða til þessa er mjög mismunandi eftir því hvaða flokk fólk kýs. Þannig vill rúmlega 32% þeirra sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn einkavæða Ríkisútvarpið, en einungis um 5% þeirra sem myndu kjósa Vinstrihreyfinguna Grænt framboð og Samfylkinguna. Það er þó athyglisvert að hvergi finnst meirihluti í flokkunum fyrir einkavæðingu. Svarendur voru 1.596 talsins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu.

Einnig var sagt frá því að tæplega 47% Íslendinga finnst fjölmiðlar á Íslandi háðir hagsmunaaðilum en á bilinu 12% til 13% finnst þeir óháðir. Á bilinu 17-18% finnst það mjög mismunandi eftir fjölmiðlum hvort þeir eru háðir eða óháðir. Yngsta fólkinu finnst að það sé mismunandi eftir fjölmiðlum hvort þeir eru háðir eða óháðir fremur en öðrum en annars er lítill munur eftir bakgrunni fólks í þessari spurningu.