Þinglýstir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 22 - 28. apríl 2016 var 181. Þar af voru 130 samningar um eignir í fjölbýli, 38 samningar um sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 6,7 milljarðar króna og meðalupphæð á samning 37,1 milljón króna. Þetta kemur fram í frétt Þjóðskrár.

Á sama tíma var 23 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 14 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1,1 milljarður króna og meðalupphæð á samning 51,5 milljónir króna.

Þá var 13 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 9 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 305 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,5 milljónir króna.