Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um 3 prósentustig samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallup, en um 70,6% kjósenda styðja hana enn.

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur með 25,5% atkvæða, síðan Vinstri græn með 16,9% og Framsóknarflokkurinn með 9,5%. Samanlagt gerir fylgi ríkisstjórnarflokkanna 51,9%, eða um tæplega 19 prósentustigum minna fylgi en þeir sem segjast styðja stjórnina.

Gömlu ríkisstjórnarflokkarnir frá því fyrir kosningarnar í haust, eru hins vegar með 33,9% fylgi í heildina, þar af Viðreisn með 7,3% og Björt framtíð, flokkurinn sem klauf ríkisstjórnina með 1,1%.

Fylgi flestra flokka breytist um minna en 1 prósentustig

Heilt yfir eru litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða en fylgi Framsóknarflokksins minnkar um rúmlega tvö prósentustig. Tæplega 10% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag.

Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka og breytist fylgi þeirra um á bilinu 0,4 - 1,0 prósentustig. Tæplega 26% segjast nú myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 17% Vinstri græn, liðlega 16% Samfylkinguna, næstum 11% Pírata, rúmlega 7% Viðreisn, nær 7% Miðflokkinn, tæplega 6% Flokk fólksins og nær 2% aðra flokka, þar af 1,1% Bjarta framtíð.

Rösklega 8% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 5% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.