Lýstar kröfur í Haldleysi ehf., sem áður hét Fáfnir Holding, námu 734 milljónum króna. Félagið hélt utan um eignarhlut Steingríms Erlingssonar, í Fáfni Offshore. Steingrímur stofnaði Fáfni Offshore árið 2012 til að reka þjónustuskip við olíuleit en honum var sagt upp störfum í árslok 2015.

Í Lögbirtingablaðinu kemur fram að 12,7 milljónir hafi fengist upp í veðkröfur sem sem samsvarar 7,4% en þær námu alls 171 milljón króna. Ekki var tekin afstaða til almennra krafna.

Haldleysi var lýst gjaldþrota í júlí 2017. Samkvæmt síðasta birta ársreikningi Haldleysis nam skuld félagsins við Steingrím 470 milljónum króna í árslok 2015. Þá nam eigið fé félagsins 250 þúsund krónum en eignarhluturinn í öðrum félögum var metinn á um 600 milljónir króna.

Eftir uppsögn Steingríms var hlutafé Fáfnis Offshore aukið af hluthöfum félagsins. Fáfnir Holding tók ekki þátt í hlutafjáraukningunni og við það þynntist hlutur félagsins í Fáfni Offshore úr 21% í 10,5% og þar með lækkaði virði helstu eignar Fáfnis Holding töluvert.

Þrotabú Haldleysis stefndi Steingrími og krafist riftunar á greiðslu á tæplega 40 milljóna króna skuldabréfi úr félaginu til Steingríms. Skuldabréfið var gefið í tengslum við sölu Fáfnis Holding á fasteigninni við Bárugötu 4 árið 2016. Kaupandi húsnæðisins gaf skuldabréfið út en Fáfnir Holding framseldi bréfið áfram til Steingríms.