Þriðjudagur, 21. maí 2013
 
TölublöðVenjuleg útgáfa

Stofna nýtt fjárfestingafélag

15. júlí 2012 kl. 14:21

Virðing

Eigendur Kjölfestu, nýs fjárfestingafélags, eru 14 fagfjárfestar. Þar af eru 12 lífeyrissjóðir.

Virðing og ALM fjármálaráðgjöf ásamt Kjölfestu GP hafa stofnað fjárfestingafélagið Kjölfestu slhf. Eigendur félagsins eru 14 fagfjárfestar, þar af 12 lífeyrissjóðir. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er tilgangur þess að fjárfesta í millistórum og smærri fyrirtækjum á Íslandi og styðja þá um leið við sókn og framþróun íslensks atvinnulífs.

Rekstraraðilar félagsins eru Virðing hf. og ALM Fjármálaráðgjöf hf. en lögð er áhersla á að fjárfesta í fyrirtækjum með gott sjóðstreymi, rekstrarsögu og þekkt viðskiptalíkan. Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur mun gegna starfi framkvæmdastjóra hjá félaginu. Áætlað er að fyrstu fjárfestingar sjóðsins verði kynntar með haustinu.