Mánudagur, 20. maí 2013
 
TölublöðVenjuleg útgáfa

Halli á ríkisrekstrinum er enginn áfellisdómur

19. júlí 2012 kl. 15:55

Stjórnarráðið

Greiningardeild Arion banka segir frávik frá fjárheimildum að hluta ekkert með rekstur ríkisins að gera.

Þótt hallarekstur ríkisins hafi reynst meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir þá er niðurstaðan ekki endilega sá áfellisdómur yfir tilraunum stjórnvalda til að ná tökum á ríkisfjármálunum og virst gæti við fyrstu sýn, að mati greiningardeildar Arion banka. 

Deildin bendir á það í Markaðspunktum sínum í dag að frávik frá fjárheimildum hafi að stórum hluta ekkert með rekstur ríkisins og opinberrar þjónustu að gera og sé það eingöngu bókhaldslegs eðlis; engir peningar fara úr kassanum. Bent er á niðurfærslu eignahluta ríkisins í Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins því til staðfestingar. Niðurfærslan er er breyting á viðmiði, hún krefst hvorki eiginfjárframlags né nýrrar lántöku.

Fjallað er í tarlega um afkomu ríkisins í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum Tölublöð hér að ofan.