Malcolm Walker, stofnandi og eigandi Iceland Foods, er ekki hluthafi í íslensku Iceland versluninni sem Jóhannes Jónsson, oft kenndur við Bónus, setti á laggirnar í lok júlí.
Þetta staðfestir Walker í viðtali í Klinkinu á viðskiptavef Vísis.
Þann 10. maí sl. greindi Viðskiptablaðið fyrst fjölmiðla frá því að Jóhannes hygðist snúa aftur í verslunargeirann og opna verslun síðla sumars. Þá greindi Viðskiptablaðið frá því að um Iceland verslun væri að ræða en Jóhannes vildi þó ekki staðfesta það í samtali við blaðið á þeim tíma en Walker staðfesti þó að þeir myndu eiga í samstarfi.
Til gamans má rifja það upp að Walker stofnaði Iceland Foods verslunarkeðjuna árið 1970 en hætti árið 2001. Eftir að Baugur Group hafði eignast verslanirnar sneri Walker aftur árið 2005 en verslunarkeðjan er nú alfarið í hans eigu eftir að hann keypti hana af Slitastjórn Landsbankans.
Í samtali við Klinkið segir Walker að opnun Iceland hér á landi hafi í raun verið greiði við hina svokölluðu Baugsfeðga, þá Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson.
„Við flytjum út vörur til ýmissa landa, til dæmis Spánar. Hann bað um að fá nafnið lánað og flytja vörur okkar hingað og við samþykktum það. Við gerum allt sem við getum til að styðja fjölskylduna,“ segir Walker eftir því sem fram kemur í íslenskri þýðingu á vísir.is
